Lífið

Hélt afmælið sitt í flugvélalíkani umkringd stórstjörnum

Þórdís Valsdóttir skrifar
Kim Kardashian var meðal gesta í afmælisveislunni.
Kim Kardashian var meðal gesta í afmælisveislunni. Skjáskot
Fyrirsætan Chrissy Teigen hélt upp á afmælið sitt í háloftunum um helgina, í þykjustu að minnsta kosti. Chrissy fagnaði 32 ára afmælinu sínu í gær og var þemað í partýinu 70‘s Pan-Am og vísar til Pan-Am flugfélagsins sem var starfrækt frá árunum 1927 til 1991. Chrissy er fædd 30. nóvember 1985.

Kim Kardashian, Kanye West og Kris Jenner voru meðal gesta í veislunni sem var haldin í flugvélalíkani þar sem hver gestur fékk sitt eigið flugsæti og flugfreyjur störfuðu um borð í vélinni og þjónuðu gestum. Gestirnir þurftu einnig að byrja á því að innrita sig í „flugið“ og fengu farseðil við komuna í veisluna.

Kimye @ Chrissy Teigen's 60s Themed Birthday #kimkardashian

A post shared by Kim Kardashian Snapchats (@kimksnapchats) on

Greinilega hefur mikið verið lagt í veisluna, enda verður maður ekki 32 ára á hverju ári.

Chrissy Teigen gengur með annað barn sitt og tónlistarmannsins John Legend, en þau eiga dótturina Luna Simone sem fæddist í apríl á síðasta ári. Teigen og Legend giftu sig árið 2013 á Ítalíu.

John Legend tók lagið fyrir eiginkonu sína og tók lagið I say a little prayer sem Aretha Franklin gerði frægt árið 1968.

@ Chrissy Teigen's 60s Themed Birthday Party #kimkardashian

A post shared by Kim Kardashian Snapchats (@kimksnapchats) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×