Lífið

Robbie Williams faldi Geri Halliwell í skottinu á bílnum hennar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Robbie Williams og Geri Halliwell á sviði á Brit-verðlaunahátíðinni árið 2001.
Robbie Williams og Geri Halliwell á sviði á Brit-verðlaunahátíðinni árið 2001. vísir/getty
Breski söngvarinn Robbie Williams tók upp á því á sínum tíma að fela Geri Halliwell, Kryddpíu, í skotti á bíl til að koma í veg fyrir að svokallaðir „paparazzi“-ljósmyndarar næðu myndum af þeim saman en þau voru mjög góðir vinir.  

Williams sagði frá þessu í spjallþætti Graham Norton á BBC fyrir helgi þar sem hann var að kynna nýjustu bókina sína, Reveal. Hann segir frá þessu atviki í bókinni og rifjaði það einnig upp í þættinum en hann lýsti því hvernig ljósmyndarar höfðu safnast saman fyrir utan íbúð hans í Notting Hill.

Það hefði verið ógerningur fyrir Williams og Halliwell að komast óséð saman út í bíl úr íbúðinni og hann brá því á það ráð að setja Halliwell í stóra íþróttatösku.

„Hún er mjög lítil og ég setti hana bókstaflega í þessa stóru íþróttatösku, skellti töskunni yfir öxlina á mér og ljósmyndararnir smelltu af á fullu. Hún var með bílinn sinn þarna og ég setti hana í skottið á bílnum hennar sem er fyndið...“ sagði Williams í þætti Norton en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×