Ólafur Arnalds spilar í Íran Benedikt Bóas skrifar 6. desember 2017 12:00 Borgin Teheran að kvöldi til. Fylgjendum Ólafs í Íran hefur fjölgað mjög mikið á undanförnum árum, honum til mikillar gleði. Nordicphotos/Getty
Mig hefur lengi dreymt um að fá að spila í Íran, aðallega vegna þess að mig langar að sjá landið og kynnast fólkinu þar,“ segir Ólafur Arnalds en hann mun spila á fimm tónleikum í Teheran og einnig í borginni Shiraz. „Það seldist upp á fyrstu tvo á minna en klukkutíma. Við bættum því þremur í viðbót og munum því spila fyrir samtals 4.000 manns í Teheran. Auk þess munum við líka spila eina tónleika í Shiraz,“ segir Ólafur sem er að fara í fyrsta skipti til landsins. „Ég er smá kúltúr-nörd og eyði miklum tíma í að lesa um aðra menningarheima og finnst skemmtilegast að ferðast til landa þar sem fólk hefur allt aðra sýn á lífið en við. Auk þess á sagan þarna og náttúran víst að vera alveg ótrúleg. Ég hlakka ótrúlega mikið til að spila þarna. Ég er smá stressaður með skipulagninguna enda ekki mjög margir tónleikar haldnir í landinu. Við erum að vinna með fólki sem er örlítið reynsluminna en það sem maður hefur fengið að venjast en maður tekur því bara eins og það er og ég er þakklátur fyrir þau forréttindi að fá að sjá heiminn á þennan hátt.“Hassan Rouhani, forseta Írans, hefur verið lýst sem hófsömum leiðtoga. ?Í kosningabaráttunni lofaði hann að bæta samskiptin við Vesturlönd.Nordicphotos/GettyHann segir að fyrir nokkrum árum hafi hann tekið eftir því að hlutfall fylgjenda sinna á samfélagsmiðlum jókst frá Íran. Það var óvenju hátt. „Ég benti bókaranum mínum á þetta og bað hann um að reyna að finna leið fyrir okkur til að komast þangað að spila. Það er búið að taka um fjögur ár núna, en tókst loks með hjálp þýska sendiráðsins, sem styrkir ferðina.“ Ólafur heldur í túr um heiminn í maí en það er fyrsti sólótúrinn í hartnær þrjú ár. Hann byrjar í maí í Belgíu og spilar víðs vegar um Evrópu áður en hann heldur til Norður-Ameríku þar sem hann spilar í Bandaríkjunum og Kanada. „Ég er að þróa algjörlega nýja sviðssetningu sem byggir mikið á búnaði sem ég hef hannað til að stýra sjálfspilandi píanóum. Það verða því þrjú píanó á sviðinu, ég spila á eitt og hin fylgja mér með hjálp gervigreindar. Auk þess ferðast ég með strengjakvartett og trommara og við spilum nýtt efni í bland við eldra.“
Mest lesið Fann fíkniefnin strax Lífið Falleg tónlist GDRN hljómaði ekki nógu vel Gagnrýni Inga Lind selur íbúð við Valshlíð Lífið Fleiri sniðgengu en ekki Lífið Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Lífið Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Lífið Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Lífið Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Lífið Fá í fyrsta sinn að klæðast strigaskóm Tíska og hönnun Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Lífið Fleiri fréttir Biggi Maus breiðir yfir Frikka Dór Farnar á hestbak eins og hálfs og fjögurra ára Fleiri sniðgengu en ekki Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö Inga Lind selur íbúð við Valshlíð „Þetta er náttúrulega sorgarsaga okkar Íslendinga“ Magnús Scheving og Hrefna glæsileg á opnun Sjálands Fann fíkniefnin strax Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Ráðist á Steve Buscemi og hann fluttur á sjúkrahús Táraflóð í útgáfuteiti Bjarna Hlutu „Óskarinn“ í brúðkaupsskipulagningu Þessi skipuðu íslensku dómnefndina í Eurovision Herra Hnetusmjör hitti Akon: „Þeir vita sem vita“ Ari Bragi og Dóróthea eignuðust dreng Jón og Hafdís festu kaup á einbýli með bátaskýli Greindu frá kyninu á ströndinni Stjörnulífið: „Mér fannst mæðradagurinn alltaf triggerandi“ Þessi lönd gáfu Íslandi stigin þrjú „Það var algjört kossaflens í gangi í Breiðholtinu“ Leikkonan sem lék fyrsta fórnarlambið í Ókindinni er látin Fögnuðu heimkomu Nemo Kristrún ekki lengur á meðal ungs jafnaðarfólks Hellti sér yfir EBU að lokinni keppni Hundar mæta í vinnuna með eigendum sínum Skilyrði að koma Borgarnesi á kortið Nýir Íslendingar heimsóttu Bessastaði Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö Guðný og Pétur selja glæsihöll í Garðabæ Fyndnustu gæludýramyndir ársins Sjá meira