Fótbolti

Leikmenn í stórhættu er bíll kom inn á völlinn | Myndband

Ævintýralegt atvik átti sér stað í yngri flokka leik í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á dögunum.

Leikmenn voru að fullu að spila er bíll kemur óvænt inn á völlinn og það á talsverðri ferð.

Ökumaður bílsins tefldi ansi tæplega er hann keyrði á milli leikmanna áður en hann keyrði út af vellinum aftur. Ekki er vitað hvað honum gekk til.

Leikurinn var flautaður af og heimaliðið sektað um eina og hálfa milljón króna vegna atviksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×