Bílar

Björk vann World Touring Car Championship

Finnur Thorlacius skrifar
Björk fagnar titli sínum eftir lokakeppnina í Qatar.
Björk fagnar titli sínum eftir lokakeppnina í Qatar.
Já, hann heitir Björk, reyndar Thed Björk og á líklega fátt sameigilegt með hinni ástsælu söngkona okkar Íslendinga, Björk Guðmundsdóttur. Björk er sænskur keppnisökumaður og hann vann á dögunum WTCC keppnisröðina, eða World Touring Car Championship en í þeirri keppnisröð er keppt 20 sinnum á hverju tímabili á 10 keppnisstöðum í jafn mörgum löndum.

Tvær keppnir fara semsagt fram á hverjum keppnisstað og hafði Björk sigur í tveimur þeirra en sýndi mjög stöðugan akstur og var oftast á meðal efstu manna. Hann safnaði 283,5 stigum á nýliðnu keppnistímabili, en næsti keppandi á eftir honum náði 255 stigum en það var Norbert Michelisz frá Ungverjalandi.

Björk er fyrsti Svíinn sem hefur sigur í WTCC keppnisröðinni, en Björk ók á Volvo S60 Polestar touring bíl fyrir liðið Cyan Racing. Cyan Racing hafði einnig sigur í ár meðal keppnisliða. Á flestum þekktum bílavefjum heimsins sem greint hafa frá sigri Björk í WTCC er mikið gantast með það að sigurvegarinn í ár heiti sama nafni og Björk okkar Guðmundsdóttir og sýnir það best hversu þekkt nafn hún er í tónlistarheiminum.

Keppnisbíll Björk í WTCC.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×