Lífið

Corden gerir tilraun til að leysa af sem dansari Taylor Swift

Atli Ísleifsson skrifar
James Corden sýnir lipra takta með Taylor.
James Corden sýnir lipra takta með Taylor.
Þáttastjórnandinn James Corden mætti nýlega í tónleikahöllina The Forum í Los Angeles þar sem hann gerði tilraun til að „leysa af“ sem framkvæmdastjóri hallarinnar.

Hver stórstjarnan á fætur annarri var stödd í höllinni, daginn sem að Corden mætti, en verið var að undirbúa iHeartRadio Jingle Ball tónleikana. Innslagið var sýnt í þætti Corden í gær.

Í innslaginu má sjá þegar Corden reynir að bæta öryggisgæsluna í kringum Ed Sheeran, nuddar Niall Horan og leysir af sem dansari í atriði Taylor Swift. Sömuleiðis birtast þau Demi Lovato og Liam Payne í innslaginu sem sjá má að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×