Handbolti

ÍBV kláraði Hvít-Rússana örugglega

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigurbergur Sveinsson fór mikinn í Eyjum í dag.
Sigurbergur Sveinsson fór mikinn í Eyjum í dag. vísir/ernir
ÍBV er komið áfram í Áskorendabikar Evrópu eftir öruggan fimm marka sigur, 32-27, á hvítrússneska liðinu HC Gomel í Vestmannaeyjum í dag.

Eyjamenn verða því í pottinum þegar dregið verður 16-liða úrslit keppninnar.

ÍBV vann fyrri leikinn ytra, 27-31 og voru ekki í miklum vandræðum með Hvít-Rússana í dag.

Sigurbergur Sveinsson var markahæstur í liði ÍBV með níu mörk.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×