Handbolti

Janus Daði með þrjú mörk í sigri á Veszprém

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Janus Daði skoraði þrjú mörk úr fimm skotum.
Janus Daði skoraði þrjú mörk úr fimm skotum. vísir/eyþór
Danmerkurmeistarar Aalborg gerðu sér lítið fyrir og unnu Veszprém, 29-26, í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta í dag.

Þetta var fyrsti sigur Aalborg í Meistaradeildinni í vetur. Liðið er áfram í áttunda og neðsta sæti B-riðilsins en á enn möguleika á að komast áfram.

Janus Daði Smárason heldur áfram að spila vel fyrir Aalborg í Meistaradeildinni en hann skoraði þrjú mörk úr fimm skotum í leiknum.

Arnór Atlason var ekki með Aalborg í dag. Aron Kristjánsson er þjálfari liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×