Palace ekki skorað í níu útileikjum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ruben Loftus-Cheek skýlir boltanum frá Markus Suttner.
Ruben Loftus-Cheek skýlir boltanum frá Markus Suttner. vísir/getty
Brighton og Crystal Palace gerðu markalaust jafntefli á Amex-vellinum í kvöld.

Leikurinn var frekar rólegur. Matt Ryan, markvörður Brighton, þurfti tvisvar sinnum að taka á honum stóra sínum í fyrri hálfleik. Í þeim seinni bjargaði Andros Townsend á línu frá Glenn Murray. Annars var fátt um fína drætti.

Nýliðar Brighton eru í 10. sæti deildarinnar með 17 stig.

Palace er enn á botni deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti. Liðið hefur ekki skorað í síðustu níu deildarleikjum sínum á útivelli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira