Enski boltinn

Jón Daði skoraði og er búinn að jafna markafjöldann frá því í fyrra

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jón Daði skoraði þriðja og síðasta mark Reading.
Jón Daði skoraði þriðja og síðasta mark Reading. vísir/getty
Jón Daði Böðvarsson var á skotskónum þegar Reading vann 3-0 sigur á Barnsley í ensku B-deildinni í kvöld.

Jón Daði kom inn á sem varamaður á 56. mínútu. Tveimur mínútum fyrir leikslok skoraði hann svo þriðja mark Reading.

Þetta var þriðja mark Selfyssingsins í ensku B-deildinni á tímabilinu. Jón Daði er nú þegar búinn að skora jafn mörg mörk og hann gerði fyrir Wolves allt síðasta tímabil.

Reading hefur rétt úr kútnum að undanförnu og er komið upp í 16. sæti deildarinnar. Liðið hefur fengið fimm stig í síðustu þremur leikjum.

Í hinum leik kvöldsins í ensku B-deildinni vann Ipswich Town 0-1 útisigur á Derby County.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×