Ríkið tapar stórfé á slugsum er koma sér undan sektardómum Sveinn Arnarsson skrifar 11. nóvember 2017 07:00 Fangelsi á Hólmsheiði fjölgaði ekki fangelsisplássum því öðrum úrræðum var lokað á sama tíma. Vísir/Vilhelm
Ríkissjóður verður árlega að afskrifa sektir einstaklinga sem velja frekar að sæta vararefsingu dómstóla – sem er afplánun í fangelsi. Þessir einstaklingar fara aftast í forgangsröðun fangelsismálastofnunar og því fyrnast dómar þeirra. Sleppa þeir því við bæði við sektargreiðslu og afplánun í fangelsi. Erna Jónmundsdóttir, deildarstjóri innheimtu hjá Sýslumanninum á Norðurlandi vestra, sem innheimtir allar sektir vegna sakamála hér á landi, segir að þau afskrifi sektargreiðslur upp á 76 milljónir króna í ár af ýmsum ástæðum. Um 12 þúsund sektir eru lagðar á hér á landi vegna þessa, allt frá umferðarlagabrotum til fíkniefna- og vopnalagabrota. Um átján hundruð sektargreiðendur hafa fengið birta ákvörðun um afplánun vararefsingar þar sem þeir hafa ekki greitt sekt á tilskildum tíma.Páll Winkel fangelsismálastjóri.vísir/anton brink„Boðunarlisti fangelsismálastofnunar er langur og plássleysið hamlar því að lögregla geti sótt fólk til afplánunar. Í langflestum tilvikum þegar viðkomandi fær boð um afplánun eða lögregla sækir einstaklinga til afplánunar er sektin greidd. Því væri hægt að innheimta sektir hraðar ef pláss væri fyrir hendi,“ segir Erna. Páll Winkel fangelsismálastjóri segir að tvennt verði að hafa í huga er þessi mál eru rædd. „Í mínum huga mættu yfirvöld hafa betra aðgengi að upplýsingum um fjárhagslega getu fólks. Flestir greiða um leið og þeir þurfa að sæta vararefsingu sem gefur til kynna að fjármagn sé fyrir hendi til að greiða sektina.“ Miðað við fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp verður síður en svo breyting á þessu þar sem ekki á að auka fjárveitingu til málaflokksins. Að sögn Páls verður því nýja fangelsið á Hólmsheiði ekki rekið á fullum afköstum vegna skorts á rekstrarfé. „Einnig verður að hafa í huga að vararefsing er vararefsing. Stór hluti afplánar vararefsingu oft í samfélagsþjónustu og þeir sem eftir standa þurfa með réttu að bíða eftir plássi. Þetta eru sömu pláss og við erum að forgangsraða inn í mun alvarlegri óskilorðsbundnari brotum. Á meðan sá boðunarlisti telur um 600 manns mun þessi hópur áfram þurfa að bíða sem ákveður að greiða ekki sektir sínar,“ segir fangelsismálastjóri.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Innlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Breytingar í borholum á Reykjanesi Innlent Einn látinn eftir mikla ókyrrð í lofti Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Innlent Mynd fer á flug í kjölfar tilrauna til að láta fjarlægja hana Erlent Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Innlent Fleiri fréttir „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsir eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Sjá meira