Innlent

Helgi Hrafn svarar Brynjari: „Það eru núll mál með þínu nafni á Alþingi á kjörtímabilinu 2013-2016, Brynjar”

Ingvar Þór Björnsson skrifar
Helgi Hrafn lagði fram ellefu frumvörp og sjö þingsályktunartillögur á umræddu kjörtímabili.
Helgi Hrafn lagði fram ellefu frumvörp og sjö þingsályktunartillögur á umræddu kjörtímabili. Vísir/Samsett
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir Brynjari Níelssyni að íhuga hvar hann stendur áður en hann byrjar að kasta grjóti næst.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins deildi grein Björns Bjarnasonar á Facebook síðu sinni og tók þar undir orð hans um að Píratar hafi aldrei látið reyna á nein málefni, hvorki í kosningabaráttunni né í stjórnarmyndunarviðræðunum. Sagði Björn að Píratar hafi ekki heldur lagt sig fram um málefnaleg störf á Alþingi og tók Brynjar undir með honum: „Hér hittir Björn naglann á höfuðið eins og svo oft áður.“

Helgi Hrafn Gunnarsson svarar Brynjari fullum hálsi í athugasemd fyrir neðan deilinguna. „Það vill nefnilega svo merkilega til að á því tímabili sem þú tekur undir með Birni Bjarnasyni að Píratar hafi verið skoðana- og iðjulausir þá lagðirðu sjálfur ekki eitt einasta þingmál fram undir eigin nafni,“ skrifar Helgi. „Ekki eitt frumvarp, ekki eina þingsályktunartillögu, ekki svo mikið sem skriflega fyrirspurn til ráðherra. Ekkert. Það eru núll mál með þínu nafni á Alþingi á kjörtímabilinu 2013-2016, Brynjar.“

Einungis að benda á hvers konar glerhúsi kastað er grjóti úr

Helgi Hrafn lagði fram ellefu frumvörp og sjö þingsályktunartillögur á umræddu kjörtímabili, Jón Þór Ólafsson lagði fram átta frumvörp og fjögur þingsályktunartillögur á kjörtímabilinu og Birgitta Jónsdóttir lagði fram sjö frumvörp og níu þingsályktunartillögur á kjörtímabilinu.

Helgi segir að hann hefði ekki bent á þetta að fyrra bragði. „Þú hagar þínum þingstörfum auðvitað bara eins og þér sýnist. Ég væri ekkert að benda á þetta að fyrra bragði, heldur einungis til að benda þér á hvers konar glerhúsi þú ert að kasta grjóti út um þegar þú ferð að tala um skoðana- og iðjuleysi annarra.”

Jafnframt skrifar Helgi að honum þyki ekki skemmtilegt að benda á þetta, enda vilji hann frekar stunda uppbyggilega pólitík. „En áður en þú byrjar að kasta grjóti næst skaltu íhuga hvar þú stendur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×