Fótbolti

Gylfi spilar væntanlega gegn Katar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari. vísir/eyþór
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari býst við því að tefla Gylfa Þór Sigurðssyni fram í leiknum gegn Katar á morgun.

„Ég er nokkuð viss um að Gylfi muni spila í þessum leik,“ sagði Heimir í samtali við íþróttadeild í dag.

Aron Einar Gunnarsson og Alfreð Finnbogason fóru með í æfingaferðina til Katar þó svo þeir væru ekki heilir heilsu. Þeir hafa verið á fínum batavegi og munu líklega mæta í fínu standi aftur til sinna félagsliða. Þeir munu þó ekki taka þátt í leiknum en Heimir stefnir að því að gefa mörgum leikmönnum tækifæri.

Leikurinn hefst klukkan 16.30 á morgun og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×