Innlent

Umferðartafir vegna grjóts sem hrundi af vörubíl

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá vettvangi á Miklubraut.
Frá vettvangi á Miklubraut. vísir
Umferðartafir hafa verið á Miklubrautinni síðasta klukkutímann eða svo vegna grjóts sem hrundi af vörubíl á götuna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni kom tilkynning vegna óhappsins klukkan 13:08 en enginn slasaðist.

Unnið hefur verið að hreinsun á götunni og hafa umferðartafir verið á meðan en ekki fást upplýsingar hvort vinnu á vettvangi sé lokið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×