Innlent

Ágreiningur gæti orðið um atvinnumál og umhverfismál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Formenn flokkanna funduðu í gær í þingflokksherbergi Framsóknarflokksins.
Formenn flokkanna funduðu í gær í þingflokksherbergi Framsóknarflokksins. vísir/vilhelm
Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, VG og Framsóknarflokksins sem Fréttablaðið hefur rætt við eru nokkuð bjartsýnir á stjórnarmyndunarviðræðurnar sem hófust formlega í gær. Þeir telja að stjórnarsamstarf þessara flokka sé besti möguleikinn til að auka stöðug­leika í stjórnmálunum. Að þeirra mati er engin önnur ríkis­stjórn líklegri til að geta setið út fjögurra ára kjörtímabil.

Fulltrúar flokkanna í viðræðunum hófu fundahöld um klukkan hálftíu í gær. „Við ætlum að teikna upp ramma stjórnarsáttamálans þannig að við einbeitum okkur að útlínunum á honum og hvaða atriði það eru sem þurfa að komast að en síðan verður framhaldið að fylla inn í boxið,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.mynd/lárus karl ingvarsson
Formenn flokkanna hafa sagt að það sé möguleiki á að ná samstöðu um ýmis brýn mál. Innviðafjárfesting, stöðugleiki á vinnumarkaði og möguleg aðkoma ríkisstjórnarinnar að kjaraviðræðum eru á meðal þeirra mála sem sett verða á oddinn.

En það þarf líka að snerta á nokkrum viðkvæmum málum, komi til samstarfs. Einn þingmaður Sjálfstæðisflokksins nefndi að ágreiningur gæti komið upp um atvinnumál og umhverfismál. Þar gæti til dæmis verið tekist á um uppbyggingu fiskeldis og uppbyggingu stóriðju. Þá hafa þessir flokkar ekki alltaf verið samstíga í utanríkis­málum, þótt afstaðan til Evrópusambandsins sé vel samrýmanleg.

„Skattamál,“ sagði einn þingmaður VG þegar Fréttablaðið spurði hann hvar gæti einna helst orðið erfitt fyrir flokkana að ná saman.

Ný ríkisstjórn þarf að leggja sitt af mörkum til að stuðla að sátt á vinnumarkaði, en kjarasamningar á almenna markaðnum eru lausir á næsta ári. „Við höfum dregið upp nokkuð skýra mynd af því hvað við teljum að þurfi að gera,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ.

Annars vegar sé að bregðast við úrskurði kjararáðs frá því í fyrrahaust, sem hafi torveldað allt samtal á vinnumarkaðnum. Hingað til hafi Píratar þó verið eini þingflokkurinn sem vill að Alþingi bregðist við þeim hækkunum sem þá voru samþykktar. Þá segir Gylfi að sameiginlegur áhugi sé á að taka upp vinnumarkaðslíkan að norrænni fyrirmynd. ASÍ telur hins vegar að samhliða þurfi að byggja upp norrænt velferðarkerfi.

„Það er lögð áhersla á að tryggja stöðugleika á félagslega sviðinu. Þar höfum við dregið upp ýmis áhersluatriði, fyrir utan almenn velferðarmál; heilbrigðismál og menntamál. Atriði sem lúta að vinnumarkaðnum. Atvinnuleysisbætur eru í sögulegu lágmarki miðað við kaupgjald, fæðingar­orlofið er langt undir meðaltekjum og ábyrgðarsjóður launa er ekki að bæta launatap vegna þess að þar eru einhverjar hámarksviðmiðanir í engu samræmi við kaupgjald,“ segir Gylfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×