Lífið

Draumaeign veiðimannsins á 165 milljónir í Skerjafirðinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalega smekkleg setustofa.
Hrikalega smekkleg setustofa.
Fasteignasalan Eignamiðlun er með 370 fermetra einbýlishús á söluskrá við Skildingatanga í 101 Reykjavík en kaupverðið er 165 milljónir.

Um er að ræða fallegt hús á einstökum stað í Skerjafirði með óhindruðu sjávarútsýni. Húsið var byggt ári 1968 og er fasteignamatið 152 milljónir. Alls eru fimm svefnherbergi inni í eigninni en húsið þarfnast allt gagngerðrar endurnýjunar að utan og innan.

Falleg setustofa er í húsinu þar sem allskonar dýr hanga á veggjunum og smellpassar eignin fyrir mikinn veiðimann.

Hér að neðan má sjá myndir af eigninni.

Húsið stendur á fallegum stað.
Ísbjörninn tekur sig vel út uppi á vegg.
Stórbrotið útsýni.
Skemmtileg borðstofa.
Fallegur arinn inni í setustofunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×