Bílar

7 sæta Lexus RX á bílasýningunni í Los Angeles

Finnur Thorlacius skrifar
Lexus RX á íslenskum vegum.
Lexus RX á íslenskum vegum.
Lexus hefur greint frá því að fyrirtækið muni sýna lengri gerð Lexus RX jeppa síns með pláss fyrir 7 farþega á komandi bílasýningu í Los Angeles í Bandaríkjunum. Er þar bæði um að ræða Lexus RX 350L og RX 450hL, en sá síðartaldi er Hybrid útgáfa bílsins.

Upphaflega ætlaði Lexus að sýna þessa bíla á Tokyo Motor Show sýningunni sem er nýafstaðin, en í staðinn valdi Lexus að sýna bílana í Bandaríkjunum og kemur það kannski ekki á óvart í ljósi þess að Lexus merkið var helst stofnað til að selja Bandaríkjamönnum lúxusbíla og langmest sala Lexus bíla er einmitt þar.

Sami vélbúnaður er í þessari lengri gerðum og þeim styttri, eða 295 hestafla 3,5 lítra bensínvél í RX 350 og 308 hestafla sama vél í RX 450. Bílasýningin í Los Angeles opnar þann 27. nóvember. Ef til vill rata þessar lengri gerðir Lexus RX 350/RX 450 til Íslands líka í fyllingu tímans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×