Innlent

Hreiðraði um sig í svefnpoka fyrir framan Austurbæ

Kristín Clausen skrifar
Myndin sem gekk á samfélagsmiðlunum vakti mikla athygli þeirra sem áttu leið hjá.
Myndin sem gekk á samfélagsmiðlunum vakti mikla athygli þeirra sem áttu leið hjá.
„Enginn ætti að þurfa að sofa úti í frosti,“ segir Hjördís Diljá Bech. Í vikunni varð hún vitni að því, þrjú kvöld í röð, að karlmaður lagðist til svefns á bekk við Austurbæ í Reykjavík. Hún segir manninn hafa litið snyrtilega út og ekki verið til vandræða.

„Hann vantaði augljóslega næturstað. Og þessi tiltekni bekkur varð fyrir valinu.“ Hjördís undrast aðgerðarleysið en það var ekki fyrr en maðurinn var sofnaður á bekknum, þriðju nóttina í röð, að lögreglan hafði afskipti af honum.

„Ég geri ráð fyrir því að lögreglan hafi fundið úrræði fyrir manninn þar sem ég hef ekki séð hann aftur.“ Hjördís birti mynd af manninum á samfélagsmiðlum sem vakti mikla athygli.

Gistiskýlið ekki fullt

Þór Gíslason, forstöðumaður Gisti­skýlisins við Lindargötu, bendir á að í Gistiskýlinu sé pláss fyrir 25 einstaklinga. Ekki var fullt í Gisti­skýlinu í vikunni. Þór segir það þó ekki koma sér sérstaklega á óvart ef maðurinn hefur kosið að leita ekki þangað.

„Gistiskýlið er ekki notalegt athvarf sem hentar hverjum sem er. Hérna er fyrst og fremst fólk í neyslu. Fólk sem er ekki í neyslu á enga samleið með þeim hópi. Það skortir neyðarúrræði fyrir fjölbreyttari hóp. Þá vantar langtíma úrræði fyrir heimilislausa.“

Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir engan eiga að þurfa að sofa undir berum himni í borginni. „Við erum með gistiskýlið. En ég veit vel að fólk sem er ekki í neyslu vill ekki vera þar. Gistiskýlið er þó okkar neyðarúrræði.“

Ilmur undrast að maðurinn hafi sofið úti og bendir á að þegar starfsfólk Gistiskýlisins fái ábendingar um fólk sem sofi utandyra fari það, oftar en ekki, og athugi með viðkomandi.

„Vandamál fólks eru auðvitað af ýmsum toga. Við erum með mikið af langtíma úrræðum fyrir utangarðsfólk. Þá erum við búin að tvöfalda áætlun um að fjölga félagslegu húsnæði á þessu ári. Vonandi horfum við fram á betri tíma.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×