Lífið

Drake hótaði áhorfanda sem var að káfa á stúlkum

Samúel Karl Ólason skrifar
Drake á sviði.
Drake á sviði. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Drake stöðvaði tónleika sína í Sydney í gær þegar hann sá mann káfa á stúlkum í áhorfendaskaranum. Á myndbandi sem náðist af atvikinu má sjá Drake stöðva lagið Know Yourself til þess að skamma og hóta umræddum áhorfenda.

„Hættu þessu kjaftæði. Ef þú hættir ekki að snerta stelpur kem ég þangað og lem þig í klessu. Ef þú hættir ekki að snerta stelpur kem ég þangað og lem þig í fjandans klessu,“ sagði Drake.

Tónleikagestir Drake fögnuðu orðum hans mjög en ekki liggur fyrir hvað umræddur áhorfandi gerði í framhaldi af atvikinu, samkvæmt frétt CNN.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×