Enski boltinn

Stuðningsmenn Man. Utd vilja funda með Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mourinho er pínu fúll út í stuðningsmenn.
Mourinho er pínu fúll út í stuðningsmenn. vísir/getty
Stuðningsmannafélag Man. Utd hefur óskað eftir fundi með stjóra félagsins, Jose Mourinho, þar sem stjórinn hefur lýst yfir áhyggjum af stemningunni á heimavelli Man. Utd, Old Trafford.

Það voru einhverjir sem bauluðu þegar Mourinho tók Marcus Rashford af velli fyrir Anthony Martial í leiknum gegn Tottenham um síðustu helgi. Það fór illa í Mourinho sem skrifaði í leikskrána fyrir Meistaradeildarleikinn gegn Benfica að vonandi myndu stuðningsmenn njóta þess leiks betur en leiksins gegn Tottenham.

Þetta er eðlilega túlkað sem skot á stuðningsmennina frá stjóranum og þeir vilja hreinsa loftið á fundi.

Stuðningsmannafélagið er sammála því að stemningin sé ekki sú sama og á árum áður. Félagið vill vinna að því með stjóranum að bæta stemninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×