Handbolti

Viggó skoraði fimm í kvöld og er meðal markahæstu manna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viggó í leik með Gróttu.
Viggó í leik með Gróttu. vísir/ernir
Viggó Kristjánsson skoraði fimm mörk þegar West Wien rúllaði yfir Ferlach, 36-22, í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Þetta var þriðji sigur West Wien í röð en liðið er í 3. sæti deildarinnar með 14 stig, tveimur stigum á eftir Alpla Hard og Aon Fivers sem verma tvö efstu sætin.

Viggó hefur verið drjúgur í liði West Wien í vetur. Hann er í 8.-10. sæti yfir markahæstu leikmenn deildarinnar en hann hefur skorað 53 mörk í 10 leikjum.

Þá er Viggó í 4.-6. sæti yfir þá leikmenn sem hafa skorað flest mörk úr vítaköstum í austurrísku deildinni. Seltirningurinn hefur skorað 18 mörk af vítalínunni, úr aðeins 21 tilraun.

Ólafur Bjarki Ragnarsson skoraði eitt mark fyrir West Wien í leiknum í kvöld. Hannes Jón Jónsson er þjálfari liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×