Enski boltinn

Stórsigrar Keflavíkur og Snæfells í bikarnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði átta stig í dag
Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði átta stig í dag vísir/eyþór
Keflavíkurstúlkur tóku nágranna sína í Grindavík í kennslustund í 16-liða úrslitum Maltbikarsins í körfubolta.

Lokatölur leiksins voru 43-96 fyrir Keflavík, en þær voru 33-62 yfir í hálfleik. Keflavíkurstúlkur skoruðu meira í öðrum leikhluta heldur en Grindvíkingar gerðu í öllum fyrri hálfleik, en þær settu niður 35 stig í leikhlutanum.

Stigaskorið var mjög dreift í leiknum, en stigahæst hjá Keflvíkingum var Brittanny Dinkins með 14 stig á tæpum 11 mínútum. Allir leikmenn á leikskýrslu hjá Keflavík skoruðu stig í leiknum.

Hjá Grindvíkingum var Halla Emilía Garðarsdóttir stigahæst með 12 stig.

Grindavík: Halla Emilía Garðarsdóttir 12, Embla Kristínardóttir 11/6 fráköst, Natalía Jenný Lucic Jónsdóttir 8/6 fráköst, Emelía Ósk Grétarsdóttir 4/9 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 4, Anna Margrét Lucic Jónsdóttir 3, Angela Björg Steingrímsdóttir 1, Thea Ólafía lucic Jónsdóttir 0, Arna Sif Elíasdóttir 0/4 fráköst, Elísabet María Magnúsdóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0/5 fráköst, Andra Björk Gunnarsdóttir 0.

Keflavík: Brittanny Dinkins 14/6 stoðsendingar, Þóranna Kika Hodge-Carr 13/6 fráköst, Birna Valgerður Benónýsdóttir 11, Erna Hákonardóttir 9, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 9, Thelma Dís Ágústsdóttir 8/6 fráköst, Svanhvít Ósk Snorradóttir 8/7 fráköst, Kamilla Sól Viktorsdóttir 7, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 6, Irena Sól Jónsdóttir 5/5 fráköst, Elsa Albertsdóttir 3, Katla Rún Garðarsdóttir 3.

Snæfellskonur áttu ekki í erfiðleikum með 1.deildar lið Þórs frá Akureyri, en lokatölur þar urðu 42-89.

Snæfell leiddi í hálfleik 20-42, og þeim tókst einnig að skora meira í öðrum leikhluta heldur en Þórsarar gerðu í öllum fyrri hálfleik, 25 stig á móti 20 stigum Þórsara.

Þór Ak.: Heiða Hlín Björnsdóttir 17/7 fráköst, Gréta Rún Árnadóttir 9/5 fráköst, Kristín Halla Eiríksdóttir 7/4 fráköst, Sædís Gunnarsdóttir 7, Alexandra Ósk Guðjónsdóttir 1, Árdis Eva Skaftadóttir 1, Karen Lind Helgadóttir 0, Belinda Berg Jónsdóttir 0, Særós Gunnlaugsdóttir 0/8 fráköst, Kolfinna Jóhannsdóttir 0.

Snæfell: Rebekka Rán Karlsdóttir 24/6 fráköst, Berglind Gunnarsdóttir 16/11 fráköst/6 stoðsendingar, Kristen Denise McCarthy 15/15 fráköst/5 stolnir, Anna Soffía Lárusdóttir 12/6 fráköst, Sara Diljá Sigurðardóttir 9/13 fráköst/5 stolnir/3 varin skot, Inga Rósa Jónsdóttir 7, Andrea Bjort Olafsdottir 4/7 fráköst/6 stoðsendingar, Thelma Hinriksdóttir 2/5 fráköst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×