Áfram sat Birkir á bekknum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Birkir Bjarnason fær lítið að spila fyrir Villa
Birkir Bjarnason fær lítið að spila fyrir Villa vísir/getty
Birkir Bjarnason og Jón Daði Böðvarsson þurftu báðir að horfa á lið sín spila í ensku 1. deildinni í dag.

Jón Daði er meiddur og var því ekki í hóp hjá Reading sem fór með 2-4 sigur á Derby County á útivelli.

Þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann og skorað fleiri mörk, voru Reading menn undir í flestri tölfræði. Þeir áttu aðeins átta skot, fimm þeirra hittu á rammann og fjögur enduðu í netinu.

Gestirnir fengu ekki eina einustu hornspyrnu í leiknum, en Derby átti átta stykki.

Reading fer með sigrinum upp í átjánda sæti deildarinnar og er nú sex stigum frá fallsæti.

Birkir þurfti að sitja á varamannabekknum enn einn leikinn í 1-2 tapi gegn Sheffield Wednesday.

Adam Reach kom Wednesday yfir strax á fyrstu mínútu leiksins með skoti fyrir utan teig. Jordan Rhodes bætti öðru markinu við á 23. mínútu, en Christopher Samba náði að klóra aðeins í bakkann fyrir Villa á lokamínútunum. 

Villa er í fimmta sæti deildarinnar, níu stigum á eftir toppliði Wolves.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira