Körfubolti

Nike-treyjurnar í NBA-deildinni virðast vera handónýtar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Treyja LeBron rifnaði eftir miðju bakinu í leik á dögunum.
Treyja LeBron rifnaði eftir miðju bakinu í leik á dögunum. vísir/getty
Íþróttavörurisinn Nike hefur fengið nokkrar mjög vondar auglýsingar í upphafi NBA-tímabilsins því treyjurnar hafa verið að rifna af leikmönnum við litla snertingu.

Að minnsta kosti fimm treyjur hafa rifnað af leikmönnum NBA-deildarinnar það sem af er tímabili. Afar neyðarlegt fyrir Nike.

Fyrirtækið hefur nú viðurkennt að augljóslega séu treyjurnar ekki nógu góðar og til stendur að gera breytingar á treyjunum sem liðin í deildinni klæðast.

Ekki er langt síðan Nike gerði átta ára samning við NBA-deildina um að skaffa liðum deildarinnar treyjur.

Treyja Ben Simmons rifnaði alveg í sundur.vísir/getty
Þetta er víst líka hægt.vísir/getty
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×