Lífið

Strákar biðja um einkakennslu: „Kviðsystir flestra vinkvenna minna“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kara Kristel ræðir opinskátt um kynlíf á FM957.
Kara Kristel ræðir opinskátt um kynlíf á FM957.
Kara Kristel heldur úti vinsælu kynlífsbloggi og var hún mætt í Brennsluna á FM957 í morgun og ræddi við þá Kjartan Atla Kjartansson og Hjörvar Hafliðason um kynlíf.

Kara mun mæta vikulega í Brennsluna á FM957 og ræða við drengina um kynlíf. Kara hefur síðustu daga fengið pósta frá ungum mönnum sem biðja hana um að stunda kynlíf með sér og gefa þeim í framhaldinu einkunn.

„Þetta hefur aukist eftir síðasta viðtal við mig. Ég opna bara þessi skilaboð og um leið og ég sé hvað stendur þarna loka ég þeim strax. Mér finnst þeir frekar bjartsýnir að ég sé að fara að svara svona.“

Kara mætti í þáttinn í morgun með spurningar til þeirra Kjartans og Hjörvars. Hún spurði þá meðal annars hvort þeir hefðu flett fólki upp í Íslendingabók eftir að hafa stundað kynlíf með þeim. Drengirnir höfðu ekki gert það en Kara aftur á móti hafði flett upp bólfélögum.

„Ég yfirleitt veit ef strákurinn hefur sofið hjá vinkonu minni. Ísland er það lítið að svoleiðis getur komið upp. Ef þau voru kærustupar, þá er það alltaf nei. En ef þau voru búin að sofa saman, af hverju ekki? Ég held að ég sé kviðsystir flestra vinkvenna minna.“

Hún segir í raun að það kveiki í keppnisskapinu ef hún viti að vinkona sín sé búin að sofa hjá karlmanninum sem Kara er að fara stunda kynlíf með.

Hér að neðan má hlusta á spjallið við Köru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×