Innlent

Ökumaður alvarlega slasaður

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Ökumaðurinn velti bílnum í Álftafirði.
Ökumaðurinn velti bílnum í Álftafirði. Vísir/Pjetur
Ökumaður bíls, sem hafnaði utan vegar í Álftafirði við Ísafjarðardjup í gærkvöldi, slasaðist alvarlega, en er þó ekki talinn í lífshættu.

Þegar hann skilaði sér ekki á réttum tíma til Ísafjarðar voru björgunarsveitir kallaðar út og fundu þær bílinn og manninn á ellefta tímanum.

Hann var fyrst fluttur á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði en þaðan var kallað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti hann á Landsspítalann í Reykjavík. Þangað var komið á þriðja tímanum í nótt. Maðurinn var með meðvitund þegar hann var fluttur suður. 

Alls tók á þriðja tug björgunarsveitarmanna, auk lögreglumanna og sjúkraflutningamanna, þátt í leitinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×