Óstöðvandi eftir að ágúst lauk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. október 2017 08:00 Harry Kane skoraði tvívegis í sigrinum á Liverpool. vísir/getty
Ágúst er löngu liðinn og þá blómstrar Harry Kane. Þessi magnaði framherji hefur verið óstöðvandi undanfarnar vikur og það varð engin breyting þar á þegar Tottenham fékk Liverpool í heimsókn á Wembley í gær. Kane skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-1 sigri Spurs. Í síðustu níu leikjum Tottenham í öllum keppnum hefur Kane skorað 13 mörk. Hann hefur einu sinni gert þrennu og fimm sinnum tvö mörk í leik. Kane mistókst að skora í fyrstu þremur leikjum Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en í síðustu fimm leikjum hefur hann gert átta mörk. Enginn leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hefur skorað meira á tímabilinu. Kane vantar aðeins 14 mörk til að komast í 100 marka klúbbinn í ensku úrvalsdeildinni. Og haldi hann svona áfram þarf Alan Shearer að hafa áhyggjur af markametinu sínu (260 mörk).Stóru málin eftir helgina í enska boltanumStærstu úrslitin Tottenham tók Liverpool í bakaríið á Wembley og vann 4-1 sigur. Spurs sýndi styrk sinn í leiknum og var hættulegt í nánast hvert skipti sem liðið fór fram yfir miðju. Með sigrinum jafnaði Tottenham Manchester United að stigum í 2. sæti deildarinnar.Hvað kom á óvart? Huddersfield gerði sér lítið fyrir og vann 2-1 sigur á Manchester United á heimavelli. Þetta var fyrsta tap United fyrir Huddersfield í 65 ár. Eftir frábæra byrjun á tímabilinu fjaraði aðeins undan nýliðunum. Sigurinn á laugardaginn var langþráður og kom þeim upp í 12. sæti deildarinnar.Mestu vonbrigðin Manchester United lék sinn versta leik á tímabilinu þegar liðið laut í lægra haldi fyrir nýliðum Huddersfield, 2-1, á útivelli. Flestir leikmanna United spiluðu illa, þó enginn verr en sænski miðvörðurinn Victor Lindelöf. José Mourinho var afar ósáttur við hugarfar manna sinna og lét þá óánægju í ljós í viðtölum eftir leikinn.
Enski boltinn Tengdar fréttir Blæðandi sár í Bítlaborginni Liverpool-liðin tvö eru í vandræðum í ensku úrvalsdeildinni. Þau töpuðu bæði stórleikjum í gær. Starf Ronalds Koeman, knattspyrnustjóra Everton, hangir á bláþræði. 23. október 2017 07:00 Mest lesið Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Íslenski boltinn Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Íslenski boltinn Freyr þakklátari fyrir ótrúlegustu hluti: „Búið að vera erfitt“ Fótbolti Mike Tyson frestar bardaganum á móti Jake Paul Sport McIlroy fékk löggu til að afhenda konu sinni skilnaðarpappírana Golf Afi skenkti leikmönnum Dortmund bjór Fótbolti Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Handbolti Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Vatnsskortur í Stokkhólmsmaraþoninu Sport Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Sjá meira
Blæðandi sár í Bítlaborginni Liverpool-liðin tvö eru í vandræðum í ensku úrvalsdeildinni. Þau töpuðu bæði stórleikjum í gær. Starf Ronalds Koeman, knattspyrnustjóra Everton, hangir á bláþræði. 23. október 2017 07:00