Fótbolti

Dómarinn í leik íslensku stelpnanna í dag gerði þessi svakalegu mistök á HM | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gyöngyi Gaál.
Gyöngyi Gaál. Vísir/Getty
Hin ungverska Gyöngyi Gaál mun dæma leik Íslands og Tékklands í undankeppni HM 2019 en leikurinn fer fram í dag á Městský-leikvanginum í Znojmo.

Gyöngyi Gaál er 42 ára gömul og reynslumikil en hún dæmdi sinn fyrsta FIFA leik árið 2002 og hefur dæmt á heimsmeistaramótum og Evrópumeistaramótum.

Það eru hinsvegar ein alvarleg mistök sem hún á erfitt með að sleppa frá. Þau gerði hún á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi fyrir sex árum síðan.

Gyöngyi Gaál dæmdi þá ekkert þótt að varnarmaður Miðbaugs-Guíneu hafi hreinlega haldið á boltanum í sínum eigin vítateig.

Gaál baðst seinn afsökunar á þessum mistökum sínum en atvikið má sjá hér fyrir neðan.





Það er hreinlega ótrúlegt að hún hafi ekki séð þetta atvik enda boltinn lengi í höndum á varnarmanninum en sú ungverska hefur vonandi lært af mistökunum og lætur ekkert framhjá sér fara í dag.

Leikur Íslands og Tékklands hefst klukkan fjögur að íslenskum tíma en það verður fylgst með honum hér inn á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×