Lífið

Marg­menni í út­gáfu­hófi dag­blaða­mógúls

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson mættu á svæðið.
Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson mættu á svæðið. Vísir/Ernir
Útgáfuhóf bókarinnar Allt kann sá er bíða kann var haldið í Norræna húsinu síðastliðinn þriðjudag. Bókin er skrifuð af Silju Aðalsteinsdóttur um Svein R. Eyjólfsson blaða­útgefanda.

Bókin kemur út hjá Máli og menningu.
Í lýsingu um bókina segir: 

„Sveinn R. Eyjólfsson kemst Íslendinga næst því að vera „dagblaðamógúll“. Hann reisti Vísi úr rústum, stofnaði Dagblaðið þegar þeir Jónas Kristjánsson yfirgáfu Vísi með hvelli og gerði það að stórveldi, síðan DV, netmiðilinn Visir.is og Fréttablaðið.

Sveinn er maðurinn sem bæði sameinaði málgögn félagshyggjuaflanna og bar ábyrgð á Eimreiðarklíkunni, og lengst af átti hann meirihlutann í Frjálsri fjölmiðlun sem var þá eitt helsta fjölmiðlaveldi landsins. Þrátt fyrir þetta hefur hann sjálfur verið huldumaður, sjaldan veitt viðtöl eða sést á myndasíðum glansblaðanna.

Allt kann sá er bíða kann rekur viðburðaríka ævisögu Sveins, allt frá erfiðum æskuárum til glæsilegs ferils í íslensku viðskiptalífi. Sveinn er sjálfstæðismaður af hugsjón en var þó flokknum óþægur með því að berjast gegn stórfyrirtækjum sem voru í náðinni enda er öll einokun eitur í hans beinum.

Umskipti urðu í lífi hans þegar Frjáls fjölmiðlun varð gjaldþrota árið 2002. Þá tóku við ár úrvinnslu sem einnig sýndu hvert efni er í manninum.“

Sveinn R. Eyjólfsson og Silja Aðalsteinsdóttir fagna bókinni sinni.Vísir/Ernir
Sigurður G. Guðjónsson og Bubbi Morth­ens létu sig ekki vanta.Vísir/Ernir
Ágústa Jóhannsdóttir og Siv Friðleifsdóttir skemmtu sér vel.Vísir/Ernir
Styrmir Gunnarsson og Björn Jón Bragason voru í góðum gír. Vísir/Ernir
Ellert B.Schram, Guðrún Ágústsdóttir og Halldór Blöndal ræddu málin.Vísir/Ernir
Hægt er að skoða fleiri myndir úr hófinu með því að fletta myndasafninu hér fyrir neðan.

Ingunn Benediktsdóttir, Svavar Gestsson og Högni Óskarsson.
Auður Jónsdóttir og Hólmfríður Úa Matthíasdóttir.
Gunnar Karlsson, Sveinn R. og Helgi Magnússon.
Einar Kárason og Hilmar Ingólfsson.
Katla Sveinsdóttir, Katrín Atladóttir, Atli Sveinsson, Auður Mist Halldórsdóttir, Hrafnkell Goði Halldórsson og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir.
Sigþrúður Gunnarsdóttir, Ingunn Ásdísardóttir, Sigurlaug Magnúsdóttir og Guðmundur Jón Guðmundsson.
Gísli Sveinsson og Ásta Begga Ólafsdóttir.
Auður Harðardóttir og Eðvarð Benediktsson.
Siv Friðleifsdóttir og Friðleifur Kristinn Stefánsson.
Atli Arason, Hilmar Ingólfsson og Guðný Eiríksdóttir.
Þuríður Pétursdóttir og Þrúður G. Haraldsdóttir.
Katla Sveinsdóttir, Katrín Atladóttir, Sveinn Friðrik Sveinsson og Atli Sveinsson.
Sveinn R. Eyjólfsson og Silja Aðalsteinsdóttir.
Ellert B. Schram, Guðrún Ágústsdóttir og Halldór Blöndal.
Styrmir Gunnarsson og Björn Jón Bragason.
Egill Örn Jóhannsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Þóra Hallgrímsson og Björgólfur Guðmundsson.
Sigurður G. Guðjónsson og Bubbi Morth­ens.
Ágústa Jóhannsdóttir og Siv Friðleifsdóttir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×