Fótbolti

Conor skálaði fyrir írska landsliðinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor kann að lifa lífinu.
Conor kann að lifa lífinu. vísir/getty
Það var mikil gleði í Írlandi í gær er Írland lagði Wales að velli, 1-0, í undankeppni HM 2018 og stal umspilssætinu af Walesverjum.

Rétt eins og í Reykjavík var skálað undir morgun í Dublin þó svo HM-sætið sé ekki klárt hjá Írum. Sigurinn og áfanginn var sætur.

Írski UFC-meistarinn Conor McGregor birti mynd af sér á Instagram í gær þar sem hann er hlæjandi með bjór. Reyndar Budweiser en ekki Guinness sem er Írum líklega mikil vonbrigði. Það gæti þó líklega haft eitthvað með peninga að gera.

Þar óskaði hann strákunum til hamingju en Írarnir eru þekktir fyrir að standa þétt saman.


Tengdar fréttir

Írar skildu Wales eftir heima

Írland vann 0-1 sigur á grönnum sínum í Wales í gærkvöld sem tryggði þeim sæti í umspili en skildi Wales eftir heima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×