Fótbolti

Íslendingaslagur í Svíþjóð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tryggvi Hrafn í búningi Halmstad.
Tryggvi Hrafn í búningi Halmstad. mynd/halmstad
Gautaborg hafði betur gegn Halmstad í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson voru báðir í byrjunarliði Halmstad en Elías Már Ómarsson var á bekknum hjá Gautaborg.

Pontus Silfver kom Halmstad yfir úr vítaspyrnu á 25. mínútu. August Erlingmark jafnaði fyrir gestina snemma í seinni hálfleik áður en Mikael Boman skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.

Halmstad er á botni deildarinnar, en Gautaborg er í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×