Fótbolti

Bakvörður bæði mörk PSG í naumum sigri

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Meunier skoraði bæði mörk leiksins í ag.
Meunier skoraði bæði mörk leiksins í ag. Vísir/getty
Belgíski hægri bakvörðurinn Thomas Meunier var hetja PSG í 2-1 sigri gegn Dijon í frönsku úrvalsdeildinni í dag en hann skoraði sigurmark PSG á 92. mínútu eftir að hafa komið gestunum yfir um miðbik seinni hálfleiks.

Meunier kom PSG sem lék án Edinson Cavani í dag yfir á 71. mínútu en heimamenn sem eru við fallsæti í frönsku deildinni náðu óvænt að jafna metin á 87. mínútu leiksins með marki frá Benjamin Jeannot.

Sá belgíski var þó ekki hættur en Meunier kom PSG aftur yfir á 92. mínútu leiksins þegar skot hans fór af varnarmanni og í netið eftir góðan undirbúning Kylian Mbappe. Reyndist það vera sigurmark leiksins.

Eftir tap Monaco í gærkvöldi gegn Lyon náði PSG með sigrinum í dag sex stiga forskoti á toppi deildarinnar en PSG er enn án ósigurs eftir níu umferðir með átta sigurleiki og aðeins eitt jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×