Fótbolti

Potsdam stöðvaði sigurgöngu Söru

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sara Björk var að venju í byrjunarliði Wolfsburg.
Sara Björk var að venju í byrjunarliði Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og stöllur í Wolfsburg gerðu 2-2 jafntefli við Potsdam í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Anna Blasse kom Wolfsburg yfir á 14. mínútu áður en Tabea Kemme jafnaði fyrir Potsdam á 20. mínútu.

Pernille Harder kom Wolfsburg aftur yfir á 73. mínútu, en aftur jafnaði Kemme stuttu síðar.

Var þetta fyrsti leikurinn sem Wolfsburg nær ekki að vinna á tímabilinu, en þær sitja á toppi deildarinnar með 13 stig eftir fimm leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×