Lífið

Kórar Íslands: Kvennakór Hafnarfjarðar

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Kvennakór Hafnarfjarðar
Kvennakór Hafnarfjarðar
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, er kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir.  

Fimmti þátturinn fer í loftið á sunnudaginn og koma þar fram fjórir kórar og keppa um tvö laus sæti áfram í undanúrslitin. Hér að neðan ætlum við að fá að kynnast Kvennakór Hafnarfjarðar sem kemur fram í fimmta þætti á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19:10.

Kvennakór Hafnarfjarðar

Kvennakór Hafnarfjarðar var stofnaður 26. apríl 1995. Fyrsti stjórnandi kórsins var Guðjón Halldór Óskarsson en árið 2001 tók Hrafnhildur Blomsterberg við stjórn kórsins. Núverandi stjórnandi kórsins, Erna Guðmundsdóttir, hefur starfað með kórnum frá árinu 2007. Undirleikari kórsins hin síðari ár hefur verið Antonía Hevesi. Að jafnaði eru um 45 konur í kórnum sem árið 2006 gaf út plötuna Stiklur.

Árlega heldur Kvennakór Hafnarfjarðar tvenna tónleika, vortónleika í maí og jólatónleika í byrjun aðventu, oft í samvinnu við aðra tónlistarmenn eða kóra.. Kórinn tekur reglulega þátt í ýmsum viðburðum í heimabæ sínum, Hafnarfirði, eins og til dæmis Syngjandi jólum í Hafnarborg, Jólaþorpinu og Björtum dögum. Einnig hefur kórinn sungið á aðventunni í miðbæ Reykjavíkur og í IKEA.

Kórinn æfir einu sinni til tvisvar í viku og hefur fimm sinnum farið í söngferðalag á erlenda grund. Árið 1998 fór kórinn til Toskana á Ítalíu, árið 2001 til Prag í Tékklandi, árið 2005 til Barcelona á Spáni, 2013 til Portoroz í Slóveníu og nú síðast 2017 til Ítalíu.

Hér að neðan má sjá kórinn syngja eitt laganna úr teiknimyndinni Frozen. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×