Vilja að fólki sé hlýtt og líði vel með sig Cintamani kynnir 19. október 2017 11:30 Heiða í jakka sem hún hannaði til að nota á skíðum eða snjóbretti og er með öll nauðsynleg smáatriði fyrir fjallið. MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR
Kynning: Aðalheiður Birgisdóttir, aðalhönnuður hjá Cintamani, segir mikinn undirbúning að baki hverri einustu flík. Fötin eigi að vera flott, þægileg og hagnýt. Aðalheiður Birgisdóttir, eða Heiða eins og hún er kölluð, er yfirhönnuður hjá Cintamani, íslensku fyrirtæki sem hannar útivistarfatnað sem er gerður til að standa af sér íslenskar veðuraðstæður og leggur mikla áherslu á gæði. „Við erum með útvistarföt sem henta vel hvað sem þú ert að gera,“ segir Heiða. „Ef þú kaupir jakka áttu að geta nýtt hann í fjölbreytta útivist, ekki bara til að fara út að hjóla eða á skíði. Sumar flíkurnar okkar eru samt frekar hugsaðar til daglegra nota á götunni, á meðan aðrar eru meira hugsaðar til að koma að notum á fjöllum. En þetta blandast allt og við viljum að fólk geti nýtt fötin víða.“Kom inn með nýja línu Heiða hefur starfað sem yfirhönnuður hjá Cintamani í tvö ár og vinnur með litlu teymi til að hanna endanlega vöru. „Þegar ég kom inn fyrir tveimur árum var ákveðið að hanna alveg nýja heildstæða línu, sem gæti staðið ein og sér í búðinni, og boðið upp á fjölbreyttar flíkur,“ segir Heiða. „Það er ekki gert á hverju ári því þegar maður er að vinna með svona vandaðar gæðavörur úr toppefnum fer mikill tími og peningar í að þróa hverja flík. Þess vegna eru línur ekki endurnýjaðar eins oft og gengur og gerist í annarri tísku. Við viljum líka vera með klassíska hönnun, svo fólk þurfi ekki að kaupa sér nýja úlpu á hverjum vetri og geti notað flíkurnar árum saman.“Heiða stofnaði merkið Nikita í kringum árið 2000, sem framleiddi bæði götutísku og snjóbrettafatnað. „Þannig að ég hef reynslu af hvoru tveggja. Ég hafði reynslu í svona tæknilegum brettafatnaði og var líka búin að gera götufatnað lengi,“ segir hún. „Þannig að það passaði ágætlega að tvinna það saman.“ Heiða segir að það sem er í búðunum núna sé blanda af þessari nýju línu og því sem var í búðunum fyrir. „Á þessum tíma vorum við pínu að endurhanna útlitið og svo vinnum við út frá þessu nýja útliti,“ segir hún. „Það sem kemur inn í búðina á næstu misserum á að falla inn í það og hugsunina sem var á bak við þessa línu.“Lagskipting mikilvæg „Ég vinn mjög mikið með lög og er að reyna að kenna fólki að klæða sig rétt,“ segir Heiða. „Það er ekki nóg að vera í hlýrri úlpu ef þú ert svo bara í nælonbol næst þér. Þá skiptir engu máli hvað þú ert í dýrum og fínum jakka utan yfir. Við þurfum að passa þetta vel á Íslandi. Fyrst ertu til dæmis í ullarbolnum, svo kemur primaloftjakki eða flíspeysa og síðan kemur skelin,“ segir Heiða. „Ég hugsa mikið um að láta þessi lög vinna vel saman, bæði í útivist og dagsdaglega. Ef þú ert til dæmis í primaloftjakka undir léttum jakka, þá er það eins og að vera í hlýrri úlpu. Línan er byggð upp þannig að þú getir blandað flíkum saman á margan mismunandi hátt og lagskipt eins og þú vilt.“Drífa er vatnsheldur dúnjakki sem andar vel og er tilvalinn í alla útiveru.MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIRÍslenskir litir og áferð Heiða segist fá mjög mikinn innblástur úr íslenskri náttúru. „Ég stunda mikla útivist og litirnir og áferðin í íslenskri náttúru eru aðalinnblásturinn í þessari línu,“ segir hún. „Svo fylgist maður vel með útivistarbransanum til að vera með puttann á púlsinum þegar kemur að tæknilegum nýjungum. Útlitið á fötunum er svo sambland af öllu sem maður skoðar og sér á hverjum degi,“ segir Heiða. „Það er alltaf mikil hugsun og undirbúningsvinna á bak við hverja flík og hvernig hún virkar, það skiptir ekki bara máli hvernig úlpan lítur út. Það eru til dæmis allir með síma í dag og þá skiptir máli að hafa alltaf góðan vasa fyrir símann og að hann sé á stað sem hentar vel. Við viljum að allt sé á hreinu og þægilegt. Þetta snýst um að fötin séu þægileg en líti vel út í leiðinni, þannig að fólki líði vel með sjálft sig og sé um leið ótrúlega hlýtt.“ Heiða segir mikla vinnu á bak við val á efnum. „Þau eru misjöfn eftir því hvað hentar hverju sinni,“ segir hún. „Fyrir föt sem eru hönnuð til að fara á fjöll þarf efni sem andar vel og er vatnshelt. En ef maður er að gera úlpu sem er meira til að nota á götunni vinnur maður með efni sem eru sterk en hafa kannski ekki sömu tæknilegu eiginleika. Því eru mismunandi efni í hverri einustu flík og svo erum við með fólk sem stundar mikla útivist sem prófar vöruna, þannig að við séum fullviss um að allt sé eins og það á að vera.“Greinin er unnin í samvinnu með Cintamani, sem rekur meðal annars sex verslanir hér á landi. Nánar á cintamani.is.
Snjóbrettaíþróttir Tíska og hönnun Mest lesið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Borgarstjóri og frú tóku veislustjórnina að sér Lífið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Nýtt upphaf Margrétar: „Búin að heita þessu nafni í rúma viku“ Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Fleiri fréttir Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Virkilega spennandi lokamót framundan Hanna draumareitinn fyrir sumarið Fyrstur Íslendinga að keppa í SkyRunning World Series DONE gæinn, markaðsmaður ársins? Brúðkaupsdansinn er einn af hápunktum brúðkaupsins Ný viðbót frá NIVEA dregur úr sýnileika húðslita og litabletta Sætu sænsku vörurnar sem farnar eru á flug um allan heim „Probi Female er það eina sem hefur virkað fyrir mig“ SENSAI í Hagkaup í 30 ár Minnkar kláða og ertingu í húð barnsins „Hárið á mér síkkar bókstaflega á hraða ljóssins“ Taktu þátt í BabyShowerleik Vísis Réttu hlaupafötin fyrir íslenskt „vor“ Góðgerlar sem styðja við þyngdarstjórnun og jafnari blóðsykur Njótum þess að borða það sem við elskum yfir hátíðarnar Sælgætisgerð sem byggir á íslenskri bjartsýni Leiðir gönguhópa um Ítalíu - hreyfiferðir Bændaferða njóta mikilla vinsælda Náttúruleg og ljómandi fermingarförðun Fermingargjöfin sem stenst tímans tönn Grunur um byrlun? Umhverfisvænar hárvörur sem hafa slegið í gegn Átti að hætta að æfa vegna skemmda í brjóski Snabbi og Bísamrottan eru nýjustu meðlimir Múmínkrúsanna Sjá meira