Lífið

Fjöldi fólks horfði á PJ Karsjó í bílabíói

Bílastæðið við Perluna var pakkfullt,
Bílastæðið við Perluna var pakkfullt, VÍSIR/ANTON BRINK
Fjöldi fólks mætti við Perluna í gær til að horfa á bílabíó. Stöð 2 stóð fyrir uppákomunni og frumsýndi fyrsta þáttinn af PJ Karsjó sem er ný þáttaröð sem hefur göngu sína í kvöld klukkan 20.55.

Sýningin hófst klukkan 20.00 í gær en alveg frá klukkan 19.00 var stöðugur straumur bíla upp að Perlu og áður en sýningin hófst var bílastæðið orðið pakkfullt. Það er því ljóst að fólk lét ekki rigninguna stoppa sig.

Fólk fylgdist spennt með úr bílunum sínum.vísir/anton brink
Þátturinn var sýndur með tveimur öflugum myndvörpum og hljóðið fór í bílana í gegn um FM-sendi sem fólk stillti útvarpstæki sín inn á. Þáttastjórnandi PJ Karsjó, Pétur Jóhann, var að sjálfsögðu á staðnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×