Enski boltinn

Enginn stjóri unnið fleiri lið en Wenger

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Franski hugsuðurinn
Franski hugsuðurinn Vísir/getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eignaði sér nýtt met í dag þegar lið hans bar sigurorð af Brighton í ensku úrvalsdeildinni.

Arsenal hefur nú unnið 45 lið í ensku úrvalsdeildinni undir stjórn Wenger og fór franski hugsuðurinn þar með upp fyrir Sir Alex Ferguson sem vann 44 lið í ensku úrvalsdeildinni á glæstum ferli sínum.

Þá fagnar Wenger 21 árs afmæli hjá Arsenal í dag því hann tók við liðinu þann 1.október 1996.



 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×