Íslenski boltinn

Eyjaliðið ætlar sér stóra hluti næsta sumar

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Landsliðskonan Sigríður Lára er búin að framlengja sem og fleiri.
Landsliðskonan Sigríður Lára er búin að framlengja sem og fleiri. vísir/ernir
Bikarmeistaralið ÍBV ætlar sér enn stærri hluti næsta sumar en nú þegar hafa lykilmenn liðsins framlengt við ÍBV og þjálfarinn, Ian Jeffs, hefur gert slíkt hið sama.

Sigríður Lára Garðarsdóttir, Sóley Guðmundsdóttir, Kristín Erna Sigurlásdóttir, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir, Sesselja Líf Valgeirsdóttir, Sirrí Sæland, Díana Helga Guðjónsdóttir, Sóldís Eva Gylfadóttir, Margrét Íris Einarsdóttir, Guðný Geirsdóttir og Inga Hanna Bergsdóttir skrifuðu allar undir nýja samninga ásamt því sem tveir erlendir leikmenn þær Caroline Van Slambrouck og Katie Kraeutner skrifuðu einnig undir sína samninga við ÍBV.  Þá er Cloe Lacasse samningsbundin ÍBV út næsta leiktímabil.

ÍBV ætlar svo að styrkja lið sitt enn frekar og standa yfir viðræður nú við sterka leikmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×