Stærsta rokkstjarna Japana til landsins Benedikt Bóas skrifar 4. október 2017 12:30 Marilyn Manson og Yoshiki mæta til frumsýningar myndarinnar þegar hún var sýnd í Kína. Þeir félagar eru miklir vinir og hafa eytt þó nokkrum tíma saman í stúdíói og vonast aðdáendur þeirra eftir einhverri snilld. NordicPhotos/Getty
Japanska súperstjarnan Yoshiki mun stoppa á Íslandi til að vera viðstaddur frumsýningu myndarinnar We are X í Bíói Paradís 21. október. Yoshiki er á miklu ferðalagi um Evrópu til að kynna myndina sem hefur fengið gríðarlega góða dóma. Myndin var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni í fyrra og hlaut verðlaun fyrir klippingu auk þess sem hún fékk lofsamlega dóma. Stephen Kijak gerir myndina en framleiðandi er Passion Pictures sem gerði heimildarmyndirnar One day in September, sem fjallaði um morðin á 11 ísraelskum íþróttamönnum á Ólympíuleikunum 1972 í München og Searching for Sugarman sem sagði ótrúlega sögu Sixto Rodriguez. Hljómsveitin X Japan hefur selt yfir 30 milljónir platna, og uppselt var á alla 18 tónleika hennar í Tokyo Dome tónleikahöllinni sem tekur rúmlega 55 þúsund manns í sæti. Yoshiki er klassískt lærður píanóleikari, trommuleikari og sköpunarkrafturinn á bak við hljómsveitina, sem spilar sjónrænt rokk sem Japanir kalla Visual Kei, kemur frá honum. Myndin fjallar að mestu um Yoshiki og ævi hans þótt einnig sé að sjálfsögðu rætt við hina meðlimina í hljómsveitinni. Saga hans einkennist af bæði sorg og gleði en faðir hans framdi sjálfsmorð þegar hann var aðeins 10 ára, tveir hljómsveitarmeðlimir féllu einnig fyrir eigin hendi og þá hefur hann þurft að fara í aðgerðir og glímir við gríðarlegan astma. Hann birtist á forsíðu Vogue í októberútgáfu tímaritsins en það er í fyrsta sinn í 18 ára sögu þess sem karlmaður prýðir forsíðuna. Yoshiki og söngvarinn Toshi stofnuðu X árið 1982. Þrátt fyrir að hafa reynt að finna annað nafn á hljómsveitina þá einfaldlega kom það ekki og því var ákveðið að halda nafninu. Hljómsveitin er nýbúin að ljúka við heimstúr þar sem alls staðar var uppselt. Hér að neðan má hlusta á hálftíma lag með sveitinni.
Mest lesið Stjörnulífið: „Tvær klámkerlingar á kynfræðiráðstefnu“ Lífið Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkniefni og er alls ekki með nein húðflúr Lífið Forsetaáskorunin: „Fóru Bandaríkjamenn í raun til tunglsins?“ Lífið Bjöggi Takefusa og Sólveig nefna dótturina Lífið Fór á sveitaball og keypti kálfa á klósettinu Lífið Elísa Viðars og Rasmus nefndu soninn Lífið Edda Falak á von á dreng Lífið „Það er aldeilis ekki sjálfsagt að hafa heilsu“ Lífið Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Lífið Springsteen aflýsir nokkrum tónleikum af heilsufarsástæðum Lífið Fleiri fréttir Forsetaáskorunin: „Fóru Bandaríkjamenn í raun til tunglsins?“ Fór á sveitaball og keypti kálfa á klósettinu Bjöggi Takefusa og Sólveig nefna dótturina Elísa Viðars og Rasmus nefndu soninn Stjörnulífið: „Tvær klámkerlingar á kynfræðiráðstefnu“ Kate Beckinsale lætur tröllin heyra það Edda Falak á von á dreng Af vængjum fram: „Aldrei“ notað fíkniefni og er alls ekki með nein húðflúr „Það er aldeilis ekki sjálfsagt að hafa heilsu“ Springsteen aflýsir nokkrum tónleikum af heilsufarsástæðum Kosningalag: Örþrifaráð eða snilldarútspil? Forsetaáskorunin: Hefur aldrei lent í slagsmálum Brauðtertuveisla í brauðtertusamkeppni á Selfossi Skönnuðu Aldísi frá toppi til táar og gleymdu ekki tönnunum Fer fótgangandi tæpa 800 kílómetra Krakkatían: Ljón, líffæri og landafræði Af vængjum fram: Ekki viss um að hann myndi þekkja lyktina af hassi Millie Bobby Brown og sonur Bon Jovi orðin hjón Forsetaáskorunin: Lærbraut sig út í móa og beið lengi eftir aðstoð Ganga 111 kílómetra til styrktar börnum í Gasa Fréttatía vikunnar: Forsetakosningar, ókyrrð og kisur Af vængjum fram: „Ég er að breytast í dreka hérna með þér“ Heimsóttu 160 battavelli á átta dögum Forsetaáskorunin: Innbrotsþjófurinn reyndist vera mamman Stofutónleikar Bubba og Víkings Heiðars til stuðnings Katrínu „Parkinn er þannig að hann étur menn upp ef þeir ekki hreyfa sig“ Sitt sýnist hverjum um nýja mynd af Katrínu Binni Glee hrundi til jarðar í Köben Eitt mesta átvagl sögunnar hætt að keppa: „Ekki lengur svangur“ Sumarleg pitaya-skál frá Balí sem þú verður að prófa Sjá meira