Lífi, sem er bjargað, verður að gefast tækifæri til að lifa! Stefán John Stefánsson skrifar 6. október 2017 07:00 Af hverju gengur ekkert upp hjá mér? Hvers vegna get ég ekki sagt orðin sem ég er að reyna segja? Af hverju þarf ég að leggja mig í 5 tíma eftir að hafa farið í barnaafmæli? Þetta eru spurningar sem fólk með ákominn heilaskaða spyr sjálft sig kannski oftar en aðrir. Talið er að hundruð Íslendinga hljóti heilaskaða á hverju ári og er það ein algengasta orsök áunninnar fötlunar hjá ungu fólki og ein meginorsök ótímabærs dauða. Þrátt fyrir þessa staðreynd er engin heildstæð stefna eða langtíma meðferðarúrræði til staðar. Helstu orsakir heilaskaða hjá ungu fólki eru bílslys og líkamsárásir en einnig geta höfuðhögg í íþróttum, föll eða vinnuslys valdið heilaskaða. Rannsóknir á umfangi höfuðáverka hérlendis eru af skornum skammti en ljóst er að mikil vangreining á sér stað í heilbrigðiskerfinu sem orsakast fyrst og fremst af vanþekkingu á einkennum heilaskaða. Því eru margir einstaklingar í samfélaginu sem eru ekki að fá meðferð við hæfi. Þeir sem ekki fá viðeigandi meðferð, t.d. vegna framheilaskaða, eru í aukinni hættu varðandi geðræn vandamál, áhættuhegðun og að komast í kast við lögin. Margir glíma því oft við afleiðingar heilaskaða án þess að vita af heilaskaðanum og hvers vegna hlutir ganga ekki upp hjá þeim. Heilaskaði getur haft víðtæk og truflandi áhrif meðal annars á einbeitingu, minni, mál, persónuleika, tilfinningar, hegðun, hæfni til samskipta, innsæi og framtakssemi. Önnur möguleg einkenni geta verið flog, höfuðverkur, svimi, truflun á skyni og á samhæfingu vöðva. Geðslag einstaklingsins, persónuleiki hans og hans hugræna geta getur orðið fyrir miklum áhrifum. Högg á höfuð geta haft óafturkræfar afleiðingar, heilaskaði getur gjörbreytt lífi einstaklingsins og haft neikvæð áhrif á fjölskyldulíf og framtíðaráform. Hugarfar er félag fólks með ákominn heilaskaða, aðstandenda þess og áhugafólks um málefnið. Hugarfar hefur í samráði við Fagráð um heilaskaða staðið að vitundarvakningu meðal almennings og boðið upp á jafningjahópa, aðstandendahópa, fræðslu- og reynslusögukvöld. Fræðslufundir sem Hugarfar stendur fyrir miðast við að auka skilning fólks á heilanum og áhrifum heilaskaða á hann. Þeir eru ætlaðir einstaklingum með ákominn heilaskaða og aðstandendum þeirra, sem og öðrum sem vilja öðlast meiri skilning á því sem einstaklingar með heilaskaða þurfa að glíma við. Höfundur er verkefnisstjóri Hugarfars. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína Skoðun Ærleg og heiðarleg manneskja Hlynur Hallsson Skoðun Skoðun Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Skoðun Auðkenni þarf að passa upp á Eva Valdís Jóhönnudóttir skrifar Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Hver er besti skólastjórinn? Aðalheiður Björk Olgudóttir skrifar Skoðun Vofa húsagans býsnast enn Haukur Már Helgason skrifar Skoðun Nokkrar staðreyndir um Ísland, Katrínu og Gaza Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Til þeirra sem hyggjast kjósa Katrínu Jakobsdóttur Guðlaugur Bragason skrifar Skoðun Katrín og kvenhatrið Ólafur Sveinsson skrifar Skoðun Bessastaðir eru ekki fyrir byrjendur Þorbergur Þórsson skrifar Skoðun Ég vil Baldur og því kýs ég Baldur Ólafur Helgi M. Ólafsson / Starína skrifar Skoðun Inngönguspáin Eygló Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ærleg og heiðarleg manneskja Hlynur Hallsson skrifar Skoðun Dóttir mín – uppgjör eineltis Ragnheiður Harpa Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Auðlindir í almannaeigu – Halla Hrund Logadóttir 7. forseti Íslands Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar