Tónlist

Eurovision skórnir skítugir og Svala komin í reifgallann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geggjað myndband frá Blissful.
Geggjað myndband frá Blissful.
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir segir frá því á Facebook að Eurovision skórnir séu orðnir skítugir og því hafi verið tilvalið að gefa frá sér nýtt tónlistarmyndband með Blissful.

Í dag kom út tónlistarmyndband með sveitinni og er það við lagið Make it Better.

„Eurovision skórnir orðnir skítugir. Komin í reif gallann,“ segir Svala á Facebook.

Svala er komin í gamla góða 10. áratugar útlitið í myndbandinu en það er Haraldur Ari Stefánsson sem fer með aðalhlutverkið í myndbandinu.

Einar Egilsson leikstýrir að sjálfsögðu myndbandinu en hjónin eru saman í sveitinni Blissful.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×