Innlent

Segir eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum á Akureyri að engu leyti ábótavant

Anton Egilsson skrifar
Frá leik Þórs og KR.
Frá leik Þórs og KR. Vísir/Eyþór
Eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum á Akureyri er að engu leyti ábótavant að sögn Ellerts Arnar Erlingssonar, íþróttafulltrúa bæjarins. Unglingaráð körfuboltadeildar Þórs gagnrýndi bæjarstjórn Akureyrarbæjar harðlega í yfirlýsingu í gær í kjölfar þess að hættulegt óhapp varð í íþróttasal Glerárskóla á fimmtudaginn þegar körfuboltaæfingu var að ljúka.

Óhappið varð með þeim hætti að stálvír sem hélt uppi annarri stóru aðalkörfunni í salnum slitnaði með þeim afleiðingum að hann sveiflaðist til með veggfestingunni, bolta og járni og skall í gólfið með miklum látum. Voru iðkendur að ganga frá þegar óhappið varð og féll festingin niður skammt frá einum þeirra.

Sjá: Hörð gagnrýni á bæjarstjórn eftir óhapp

Í kjölfar gagnrýninnar sendi Akureyrarbær frá sér yfirlýsingu í kvöld en í henni segir Ellert Örn Erlingsson, íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar, að eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum sé ekki með nokkru móti ábótavant.

„Vegna óhapps sem varð í íþróttahúsi Glerárskóla á fimmtudag, vill íþróttafulltrúi Akureyrarbæjar, Ellert Örn Erlingsson, að skýrt komi fram að eftirliti með öryggismálum í íþróttahúsum bæjarins er að engu leyti ábótavant. Verið var að hífa upp körfu eftir körfuboltaæfingu þegar togvír slitnaði og festing á öryggiskeðju gaf sig. Önnur öryggiskeðja hélt þó og karfan stöðvaðist því í þeirri hæð sem hún er venjulega höfð í þegar hún er í notkun,“ segir í yfirlýsingunni.

Segist hann harma óhappið og að tildrög þess verði skoðuð.

„Hér er um grafalvarlegt óhapp að ræða og í raun furðulegt að vírinn, sem er aðeins um árs gamall, skyldi slitna. Öllum körfuboltaæfingum í Glerárskóla hefur nú verið hætt um óákveðinn tíma á meðan farið verður betur í saumana á því sem gerðist og flytjast æfingar þar með í Íþróttahöllina og íþróttahús Naustaskóla. Að sjálfsögðu harma ég þetta óhapp og það er og hefur verið algjört forgangsatriði hjá okkur að tryggja öryggi þeirra barna sem iðka íþróttir í bænum. Við höfum átt í mjög góðu samstarfi við ÍBA og íþróttahreyfinguna á Akureyri um uppbyggingu og viðhald mannvirkja.“

Öryggi barna sé ávallt í fyrsta sæti

„Starfsmenn bæjarins brugðust strax við þegar vírinn slitnaði og það verða engar körfuboltaæfingar þarna fyrst um sinn a.m.k. Öryggið þarf að vera algjörlega tryggt og allt til þess gert að koma í veg fyrir að svona nokkuð geti átt sér stað. Það skiptir öllu máli að ekki urðu slys á fólki. Öryggi barnanna okkar er auðvitað alltaf númer eitt,“ segir Ellert Örn að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×