Lífið

Tók á móti Scherzinger og Osbourne á flugvellinum og fékk mjög góð ráð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Talia Dean  stóð sig vel.
Talia Dean stóð sig vel.
Talia Dean er 32 ára starfsmaður á Heathrow flugvellinum í London. Hún starfar við það að taka á móti ríka og fræga fólkinu á vellinum við sérstakan VIP inngang.

Dean mætti í áheyrnarprufu í bresku útgáfunni af X-Factor á dögunum og stóð sig með prýði. Dean hefur meðal annars tekið á móti þeim Nicole Scherzinger og Sharon Osbourne á vellinum og sitja þær báðar í dómnefnd.

Scherzinger og Osbourne hvöttu meðal annars Dean til að elta drauminn sinn þegar þær hittust eitt sinn á flugvellinum og það gerði hún með því að mæta í áheyrnarprufu.

Hún tók eigin útgáfu af laginu I put a spell on you og gerði það einstaklega vel eins og sjá má hér að neðan. Þættirnir eru á dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×