Lífið

Birkir Bekkur og Bjarki Þór í svakalegri mysuþambkeppni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hörð keppni milli tveggja harðra manna.
Hörð keppni milli tveggja harðra manna.
Snapchat-stjarnan Birkir bekkur og Bjarki Þór Pálsson fóru í mysukeppni á dögunum.

Bjarki Þór skoraði á Birki á Snapchat og létu þeir verða af keppninni í Fenri MMA á Akureyri.

Drenginir í RVKMMA eru staddir á Akureyri í æfingabúðum í Fenri MMA við undirbúning fyrir bardaga 7. október á Fightstar championship 12 en þar keppa 6 Íslendingar. Fylgjast má með RVKMMA Snapchat undir notendanafninu rvkmma. Birkir er birkirbekkur á Snapchat.

Bjarki Þór er atvinnumaður í MMA og hefur unnið alla þrjá bardaga sína en hann keppir fjórða bardagann þann 7. október.

Hér að neðan má sjá þessa skemmtilegu þambkeppni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×