Tónlist

Hryllingurinn í hversdagsleikanum

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Cyber gefur út plötuna Horror í næsta mánuði en hún fjallar um hrylling hversdagsleikans.
Cyber gefur út plötuna Horror í næsta mánuði en hún fjallar um hrylling hversdagsleikans. Mynd/Hrefna Björg
„Þetta er aðeins meiri fullorðinsplata en fyrri verk. Við unnum hana á aðeins lengri tíma og hún er aðeins lengri – þrettán lög. Upprunalega hugmyndin var að gera hryllings-konseptplötu og við lögðum upp með það. En ég veit ekki alveg hvort þetta teljist til konseptplötu, kannski svona mitt á milli. Það er allavega mikil uppbygging og endurtekning, og í rauninni frásögn, þó að það sé kannski ekki alveg línuleg frásögn,“ segir Salka Valsdóttir úr Cyber en sveitin gefur út plötu þann 13. október – föstudaginn þrettánda – sem nefnist Horror.

Í kvöld frumsýna þær svo myndband við lagið Psycho, en það er jafnframt fyrsti „singúll“ plötunnar.

„Við vorum dálítið mikið að reyna að finna hryllinginn í hversdagsleikanum, í þessum hlutum sem við gerum á hverjum degi – djamminu, að vera í sambandi, að vera ekki í sambandi og aftur sambandi, ekki sambandi. Við tengjum öll við þetta en við erum að setja þetta í búning sem okkur fannst spennandi að leika okkur með. Hljóðheimarnir eru miklu meira unnir og útpældir en þeir hafa verið í fyrri verkefnum. Við pródúseruðum aðeins meira sjálfar, ég kom miklu nánar að öllum hljóðheiminum en ég hef gert áður.“

Salka er eins og hún segir með hendurnar á tökkunum á plötunni en einnig er heill hellingur af gestum: Marmari, en hann hefur verið að gera takta fyrir þær áður, Young Nazareth úr Sturlu Atlas og fleiru – en hann pródúserar Psycho, Helgi Sæmundur úr Úlfur Úlfur kemur að borðinu, tónskáldið SiGRÚN, Sólveig Matthildur úr Kælunni miklu og fleiri, en hér er einungis talið upp fólkið sem kemur að tónheiminum.

Rappandi gestir eru Countess Malaise sem er einmitt gestur í Psycho, Emmsjé Gauti, Young Karin, Karó, Geimfarar, Hatari og fleiri.

„Það er svolítið stór hópur af fólki sem gerði þetta með okkur. Það er frekar erfitt að gera samheldna plötu í sándi og textum og sem flæðir fallega saman þegar maður vinnur með svona mörgum. Það er búið að vera mjög skemmtilegt að reyna það og held að það hafi tekist vel.“

Salka segir plötuna hafa verið, að mestu, í vinnslu frá áramótum, sirka níu mánuði „eins og barn“, eða síðan þær gáfu út EP plötuna Boys á miðnætti um áramótin síðustu, sem Salka segir alls ekki vera langan tíma þó henni líði eins og þetta hafi tekið heila eilífið.

Útgáfutónleikarnir verða haldnir á Húrra þennan sama föstudag og platan kemur út. Young Karin og Geisha Cartel hita upp og allir sem koma fram á plötunni munu mæta sem gestir – svo úr verður væntanlega ein heljarinnar tónlistarveisla.

Sálfræðitími á Aktu taktu

„Þessi vídeóhugmynd kom fyrir löngu síðan; okkur langaði að búa til myndband tekið upp á Aktu taktu, en við erum eiginlega alltaf á Aktu taktu og mikið af textunum er tekið upp á rúntinum. Draumurinn er að fá Cyber-borgara á Aktu taktu. Við erum að vona að myndbandið verði rosalega vinsælt og hann verði að veruleika,“ segir Salka beðin að lýsa því hvað sé að gerast í myndbandinu og laginu sem verður frumsýnt á Prikinu í kvöld.

„Við vorum eiginlega að grafa það upp sem óþægilegast er við okkar nærveru og okkar persónur. Ég greini oft illa hvað er verið að meina í samskiptum og svara oft á óviðeigandi hátt. Jóhanna er að tala um hvað hún verður reið þegar vinkonur hennar eru að reyna við stráka sem hún hefði kannski einhvern tímann viljað reyna við, þó að hún eigi kærasta. Við fórum í raun yfir hlutina sem okkur þykja óþægilegir í hvor annarri – það sem gerir okkur að „psychopaths“.“

Myndbandið verður frumsýnt á Prikinu í kvöld klukkan níu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×