Liverpool náði ekki að stela sigrinum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Rafael Benitez þjálfaði Liverpool frá 2004-2010.
Rafael Benitez þjálfaði Liverpool frá 2004-2010. Vísir/Getty
Newcastle og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli í lokaleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Liverpool átti nokkur góð færi undir lok leiksins, en tókst ekki að tryggja sér sigurinn.

Philippe Coutinho kom Liverpool yfir á 29. mínútu en það tók Newcastle aðeins sjö mínútur að jafna. Joselu gerði það á 37. mínútu.

Liverpool situr í sjöunda sæti deildarinnar að sjö umferðum loknum með þrjá sigra og þrjú jafntefli.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira