Bílar

Fyrsti rafmagnsbíll Skoda

Finnur Thorlacius skrifar
Skoda Vision E Concept.
Skoda Vision E Concept.
Sjá má tilraunaútgáfu af fyrsta rafmagnsbíl Skoda nú á bílasýningunni í Frankfurt, sem opnaði fyrir blaðamenn nú í morgun.

Volkswagen Group ætlar Skoda viðamikið hlutverk í rafmagnsbílavæðingu bílarisans á næstu árum, þó svo að Skoda hafi ekki ennþá boðið uppá rafmagnsbíl hingað til.

Þessi tilraunabíll ber heitið Vision E Concept, en þessi bíll var reyndar fyrst sýndur á bílasýningu í Shanghai í Kína í apríl síðastliðinn. Hann er nú örlítið breyttur, en þær breytingar eru ekki stórvægilegar. Til stendur að markaðssetja þennan bíl árið 2020 en Skoda ætlar að bjóða 5 gerðir af rafmagnsbílum árið 2025.

Vision E Concept er með jepplingalagi og býsna laglegur að horfa á. Hann verður með krafta í kögglum með sinni 306 hestafla drifrás og á að komast 500 km á fullri rafmagnshleðslu.

Bíllinn verður búinn Level 3 sjálfakandi búnaði og mörgum aksturaðstoðarkerfum.

Hinn laglegasti rafmagnsbíll frá Skoda og kemur á markað eftir 3 ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×