Innlent

Vígahnöttur vakti athygli: Bjartari en Venus

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Eins og sjá má á þessum skjáskotum var vígahnötturinn bjartur og áberandi.
Eins og sjá má á þessum skjáskotum var vígahnötturinn bjartur og áberandi.
Margir urðu vitni að vígahnetti á himninum á ellefta tímanum í kvöld án þess þó að vita að um vígahnött væri að ræða. Sævar Helgi Bragason, ritstjóri Stjörnufræðivefsins, birti aðsent myndband af þessu á Facebook á tólfta tímanum í kvöld.

„Af myndböndunum að dæma hefur þetta verið vígahnöttur,“ segir Sævar Helgi í samtali við Vísi.

„Vígahnettir eru loftsteinahröp sem geta orðið mjög björt og áberandi,“ útskýrir Sævar en hann varð sjálfur ekki vitni að þessu þar sem hann var sofnaður. Hann var vakinn eftir að fólk byrjaði að spyrjast fyrir um vígahnöttinn.

Var sjálfur sofandi

„Ég var nú farinn að sofa en maður fer ekki að sofa alveg strax á meðan eitthvað er að berast. Það er algjört klúður að hafa ekki verið úti sjálfur og vita allt um þetta.“

Við myndbandið skrifaði Sævar Helgi að steinninn hafi verið skærari en Venus og hafi svo sundrast áður en hann hvarf. Hann hafi því sennilega brunnið upp.

„Stjarnan á myndinni er líklegast Kapella og hún sýnir að steinninn sást á norðausturhimni.”

Sævar Helgi biður alla sem náðu myndum eða myndböndum af vígahnettinum að senda það á Facebook-síðu Stjörnufræðivefsins eða á netfangið stjornufraedi@stjornufraedi.is.

Óskar eftir myndum og myndböndum

„Við myndum gjarnan vilja sjá þetta til þess að geta fundið sem mest út um steininn, bæði stefnu og hraða og jafnvel þá stærð líka eða hvar hann hefur fallið.“

Sævar Helgi biður fólk jafnframt að senda upplýsingar um staðsetningu sína þegar það tók myndina eða myndbandið.

Leifur Fannar Snorrason tók myndbandið sem sjá má hér fyrir neðan en hann sendi Sævari Helga það og spurðist fyrir um þennan stein.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×