Þýfi og þjófnaður einkenndi nóttina Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. september 2017 06:39 Þjófar voru á ferli í nótt. Vísir/Getty
Lögreglan hafði afskipti af fjölda þjófa og hvers kyns hnuplara í höfuðborginni í nótt. Kvöldið hófst á sjöunda tímanum þegar þrír karlmenn voru stöðvaðir í bifreið á Hringbraut. Talið er að góssið sem fannst í bílnum hafi verið þýfi og eru allir mennirnir grunaðir um hylmingu. Þá er einn þeirra grunaður um brot á vopnalögum en ekki er nánar greint frá því í skeyti hvaða vopn fannst á manninum. Að sama skapi er ekki tilgreint hverjar málalyktir voru. Það var svo skömmu fyrir miðnætti sem farsíma var stolið af hótelgesti í Austurborginni. Símanum er sagt hafa verið hnuplað á hótelinu en þjófinum tókst ekki betur en svo að hann var myndaður í bak og fyrir við verknaðinn. Málið er nú til rannsóknar. Í bifreið á Grensásvegi voru svo tveir menn handteknir á þriðja tímanum í nótt. Ökumaðurinn er talinn hafa ekið honum undir áhrifum fíkniefna og ekki bætti úr skák að mennirnir tveir eru grunaðir um þjófnað, vörslu fíkniefna „og fleira“ eins og það er orðað í dagbók lögreglunnar. Mennirnir voru fluttir í fangageymslu þar sem þeir vörðu nóttinni. Lögreglan þurfti að sama skapi að hafa afskipti af fjölda ökumanna sem grunaðir eru um að aka undir áhrifum hvers kyns vímuefna. Þá var einni bifreið kippt úr umferð þar sem hún var í reglulega lélegu ástandi.
Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Trump lofar að útrýma mótmælum til stuðnings Palestínu Erlent Notaði niðrandi orð um samkynhneigða karla á lokuðum fundi Erlent Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Innlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið kallað út vegna sprenginga í Hafnarfirði Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Sjá meira