Góð ferð meistaranna til Baskalands

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Borja Mayoral Moya fagnar sínu fyrsta marki fyrir Real Madrid.
Borja Mayoral Moya fagnar sínu fyrsta marki fyrir Real Madrid. Vísir/Getty
Real Madrid gerði góða ferð til Baskalands og vann 1-3 sigur á Real Sociedad í 4. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Madrídingar eru í 4. sæti deildarinnar með átta stig, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona.

Borja Mayoral Moya fékk tækifæri í byrjunarliði Real Madrid og þakkaði traustið með marki á 19. mínútu. Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið.

Kevin Rodrigues jafnaði metin á 28. mínútu en átta mínútum síðar skoraði hann sjálfsmark og kom Real Madrid aftur yfir.

Það var svo Gareth Bale sem gulltryggði sigur Spánarmeistaranna með marki á 61. mínútu. Lokatölur 1-3, Real Madrid í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira